Góðan daginn

Þá er maður komin suður aftur. En það var rosalega gott að vera fyrir norðan um helgina

Við vorum bara hjá mömmu og Ómari og náðum að slappa alveg geggjað af

Við fórum svo í heimsókn til Hilmars og siggu á sunnudags morgun, og það var rosalega gaman að hitta alla.) En allavegana núna sit ég heima hjá Sigrúnu vinkonu og er að passa strákinn hennar fyrir hana ,hann er nefnilega lasinn og Kristján minn og maðurinn hennar voru að fara á köfunarnámskeið og verða í allan dag, svo fer ég að vinna kl:17 í dag og þá ætlar hún Katrín mín að vera með hann Ingva Hreiðar á meðan eða þangað til að stjáni kemur heim.....
Svo er búið að plana einhverja óvissuferð í vinnunni og það er ekki mikill áhugi hjá mér að fara í hana eins og er.... Þetta er einmitt helgina sem hann Ingvi Hreiðar verður 2 ára og mamma og þau voru að spá í því að koma suður þá, og ég vil vera heima og vera með þeim, ætlaði líka að halda uppá afmælið hans Ingva á laugardeginum.... En ég sé til hvað ég geri..... Svo er Ingvi Hreiðar alveg farinn að tala á fullu, alltaf að koma ný og ný orð hjá honum, þetta er svo skemmtilegur tími núna sem hann er á

hann er farinn að segja nafnið sitt og hann segir Ingvi Hreiðar og svo segir hann fullt að fleiri orðum

En núna er hann hjá dagmömmunni og er örugglega að leika sér

Ég er einmitt að vona það að hann Ingvi Hreiðar verði áfram frískur, að hann fari ekki að fara verða veikur.... Ég lá svo lengi lasinn að ég ætla að vona að hann sleppi alveg....
En vildi bara setja aðeins hérna inn, einhverjar fréttir af okkur

Skrifa seinna.
Una